 |
Útgáfa: Skýrslur, fræðslurit og bæklingar
Starfsfólk UMÍS ehf. Environice hefur tekið saman nokkrar skýrslur, fræðslurit og bæklinga um ýmislegt sem tengist umhverfismálum og sjálfbærri þróun. Á þessari síðu er að finna upplýsingar um helstu ritin sem birst hafa opinberlega. Hægt er að nálgast pdf-útgáfu flestra ritanna með því að smella á myndirnar sem fylgja.
Lokaskýrsla um Staðardagskrá 21
Í árslok 2009 lauk 11 ára samstarfi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Umhverfisráðuneytisins um ráðgjöf við sveitarfélög við gerð Staðardagskrár 21 í samræmi við samþykktir Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó 1992. Lokaskýrsla um starfið var afhent fráfarandi stýrihópi verkefnisins 1. júní 2010. Skýrslan hefur ekki birst opinberlega áður, en er nú birt hér til að bæta úr þörf fyrir grunnupplýsingar um starfið. Töluverð eftirspurn hefur verið eftir slíkum upplýsingum, m.a. frá skólafólki í heimildaleit. Upplýsingar um Staðardagskrárstarfið voru aðgengilegar á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga, en hurfu þaðan þegar ný heimasíða sambandsins var opnuð vorið 2010.
(Smellið á myndina til að sækja skýrsluna á pdf-formi). |
 |
Umhverfismál í innkaupavagninum
Í ársbyrjun 2010 gaf Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst út ritið Umhverfismál í innkaupavagninum, en þar er á ferðinni aðgengilegt fræðslurit fyrir starfsmenn og stjórnendur verslana um það hvernig þeir geta stuðlað að umhverfisvernd og um leið bætt ímynd verslananna. Stefán Gíslason hjá UMÍS ehf. Environice er einn þriggja höfunda ritsins, en auk hans unnu þær Hafdís Anna Bragadóttir og Lára Jóhannsdóttir að málinu. Magnús Valur Pálsson annaðist grafíska hönnun og Emil B. Karlsson hafði umsjón með útgáfunni.
Verð ritsins er 500 kr. Hægt er að panta það með því að hringja í síma Háskólans á Bifröst 433 3000 eða með tölvupósti til emil[hjá]bifrost.is. Einnig er verslunum boðið upp á námskeið um efni ritsins, sniðin að þörfum hverrar verslunar um sig, bæði hvað varðar lengd og innihald. Stefán Gíslason hjá UMÍS ehf. Environice veitir allar frekari upplýsingar um námskeiðin. |
 |
Umhverfisfræðsla á Íslandi
Haustið 2009 vann Stefán Gíslason hjá UMÍS ehf. Environice samantekt fyrir Umhverfisfræðsluráð um stöðu umhverfisfræðslu á Íslandi undir yfirskriftinni „Umhverfisfræðsla á Íslandi. Núverandi staða og tillögur til úrbóta“. Helstu niðurstöður úttektarinnar voru kynntar á fjölmennu málþingi um menntun til sjálfbærni 15. september sama ár. Skýrslan hefur nú verið gerð opinber og m.a. birt á vef umhverfisráðuneytisins.
(Smellið á myndina til að sækja skýrsluna á pdf-formi). |
 |
Handbók um umhverfismál ferðaþjónustunnar
Vorið 2009 kom út Handbók um umhverfismál ferðaþjónustunnar. Stefán Gíslason hjá UMÍS ehf. Environice vann efnið í handbókina að frumkvæði Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands og með stuðningi Starfsmenntaráðs. Bókin er skrifuð sem leiðarvísir og uppflettirit fyrir ferðaþjónustuna á Vesturlandi, með það að markmiði að nýtast annars vegar sem námsefni á námskeiðum fyrir starfsfólk greinarinnar og hins vegar við stjórnun fyrirtækjanna og kynningu inn á við jafnt sem út á við. Ætlunin er að í framhaldinu nýtist bókin ferðaþjónustufyrirtækjum í öðrum landshlutum, enda innihaldið ekki bundið staðháttum nema að litlu leyti. UMÍS ehf. Environice býður jafnframt upp á námskeið út frá efni bókarinnar, og hafa nokkur slík þegar verið haldin á Vesturlandi. Stefán Gíslason hjá UMÍS ehf. Environice veitir allar frekari upplýsingar um námskeiðin.
(Smellið á myndina til að sækja handbókina á pdf-formi). |
 |
Sterkari saman
Auður H Ingólfsdóttir, þáverandi starfsmaður UMÍS ehf. Environice tók saman efni í bæklinginn „Sterkari saman. Jafnrétti og sjálfbær þróun“, sem Umhverfisráðuneytið gaf út snemma árs 2006 og var hluti af því að framfylgja jafnréttisstefnu ráðuneytisins.
(Smellið á myndina til að sækja bæklinginn á pdf-formi). |
 |
Hreinn ávinningur
Haustið 2005 vann Stefán Gíslason hjá UMÍS ehf. Environice efni í bæklinginn „Hreinn ávinningur. Hvaða valkostir eru í boði í umhverfisvottun á Íslandi?“ Þessi bæklingur var unninn fyrir Samtök atvinnulífsins, Umhverfisfræðsluráð, Alþýðusamband Íslands og Samtök iðnaðarins. Þarna er að finna yfirlit yfir þær umhverfisvottanir sem íslensk fyrirtæki hafa aðgang að og byggjast á óháðri úttekt þriðja aðila.
(Smellið á myndina til að sækja bæklinginn á pdf-formi). |
 |
Umhverfisvottun í ferðaþjónustu
Á árinu 2000 vann Stefán Gíslason hjá UMÍS ehf. Environice ítarlega skýrslu fyrir Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) um umhverfisvottun í ferðaþjónustu. Í skýrslunni var gefið yfirlit yfir helstu vottunarkerfi á þessu sviði, og settar fram ráðleggingar varðandi þau kerfi sem helst myndu henta aðilum í ferðaþjónustu á Íslandi.
(Smellið á myndina til að sækja skýrsluna á pdf-formi). |
 |
Annað
Auk þess sem hér hefur verið talið hefur starfsfólk UMÍS ehf. Environice tekið saman efni og útbúið texta fyrir nokkur minni verk. Þar má m.a. nefna aðstoð við efnisöflun í Sprota, umhverfisfréttabréf Landsvirkjunar, svo og afmörkuð verkefni fyrir Landsnet. Þá er ógetið verka af þessu tagi sem unnin hafa verið fyrir Norrænu ráðherranefndina og getið er um sérstaklega annars staðar á þessum vef.
(Síðast uppfært 5. ágúst 2010)
|
 |
|
 |